3.8.2011 | 08:22
Makkanotendur eru gáfaðri en PC-notendur.
Rannsóknirnar munu einnig sýna að fólk sem notar PC-tölvur er mun greindarskertara en þeir sem nota Makka, enda er Internet Explorer ekki til fyrir Makka.
Þetta hefur lengi verið vitað en ekki sannað fyrr en nú.
Notendur IE greindarskertir? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þetta er hlægileg "könnun"; Segir bara að þeir sem standa að henni séu fáráðlingar...
Ég nota mest Firefox í dag.. svo Chrome, líka IE; Notaði lengi vel aðeins IE, hann var á tímabili langbesti vafrinn.
Fæstir notendur af vöfrum/stýrikerfum hafa hugmynd um hvað er í gangi, nota yfirleitt það sem kemur með vélbúnaði.
Ég hugsa að MS geti stefnt þessum aðilum, gert þá gjaldþrota :)
Ég hef verið mikið í tech support, makka eigendur eru án nokkur vafa það fólk sem veit minnst um tölvur, ég segi samt ekki að þeir séu þroskaheftir.
DoctorE (IP-tala skráð) 3.8.2011 kl. 09:19
Mér skilst líka að rannsóknin hafi leitt í ljós að þeir sem nota strætó séu mun greindari en þeir sem nota einkabíla. Reyndar hefur komið í ljós að bíleigendur eru að meðaltali með greindarvísitöluna 75 þannig að þeir eru í raun fávitar.
Óli minn, 3.8.2011 kl. 10:39
Ég hélt að PC stæði fyrir personal computer. Fellur makki ekki undir það?
Bjarki (IP-tala skráð) 3.8.2011 kl. 14:20
IE hefur aldrei verið langbesti vafrinn - hann var hins vegar vafrinn sem leyfði mönnum að hakka mest inn í stýrikerfið sem fékk flesta vefforritara til að vera lata og nota sér öryggisholurnar sem voru innbyggðar í hann. Nokkuð sem aðrir vafrar leyfðu ekki og voru þess vegna taldir "síðri"
Gulli (IP-tala skráð) 3.8.2011 kl. 14:47
Ég hélt að PC stæði fyrir Pissing Contest.
Óli minn, 3.8.2011 kl. 17:18
Talandi sem einstaklingur sem vinnur við tölvur; þá er ég að tala um Makka og vélar með Microsoft og/eða Linux sett upp í þeim, get ég gefið ykkur merkilegan staðreynd.
Þær bila allar.
Annars er þetta leiðinda "Makki vs PC"rifrildi svo hundleiðinlegur tilbúningur að það hálfa væri nóg. Þegar fólk er að tala um PC vélar er það nánast undantekningarlausn að ræða um vélar með Microsoft stýrikerfi en það er ekkert til neitt sem heitir "PC tölva". Þetta eru tugir mismunandi fyrirtækja sem framleiða mismunandi vélar og/eða íhluti fyrir vélar sem eru allar titlaðar sem PC tölvur. Dell, HP, IBM, Sony, Creative of mikill fjöldi af öðrum fyrirtækjum eru allir í þessu keppni og hellingur af fólki er ekki að skilja hversu erfitt það er fyrir Microsoft að búa til hugbúnað sem virkar fyrir þetta allt saman. Það sama á við með Linux.
Makkar eru svo aftur á móti hannaðar af Apple sem sér bæði um hugbúnað og vélbúnað fyrir þessar tölvur, þannig að þeir vita nákvæmlega hvað gerir hvað. Það gerir þær að tiltölulega öruggum tölvum, það skal enginn neita. En þegar þeir hefja þessar auglýsingar þar sem þeir ráðast alltaf á þessa sömu gömlu grýlu "Apple vs PC" þá missi ég alltaf smá virðingu fyrir þeim. Af sama skapi, enda ég alltaf á að fást við þennan smá hluta af Apple notendum sem hafa þenna lærðan hroka að tölvurnar þeirra skíti gulli og allt annað sé drasl. Ef einhverjir eru með "Pissing Contest" þá eru það þeir.
Einar Örn Gissurarson, 3.8.2011 kl. 19:06
Jæja. Nú held ég að sumir hafi ástæðu til að líða soldið kjánalega.
http://www.bbc.co.uk/news/technology-14389430
Einar Örn Gissurarson, 3.8.2011 kl. 20:34
IE 4 bar höfuð og herðar yfir aðra vafra, sama hvað Gulli segir um öryggisgalla; þeir vafra sem voru þá voru ALLIR yfirfullir af öryggisholum; Flest/Öll vefsvæði voru galopin í allar áttir, bankar sem og aðrir vefir; Þá mátti alla hakka með einföldum sql-injection.
Jamm tölvutrúarbrögð eru fyrir bjána. Lífið fyrir MS er langerfiðast þar sem þeir þurfa að styja svo margvíxlegan vélbúnað.. blah
DoctorE (IP-tala skráð) 3.8.2011 kl. 21:41
Mikið djö ... er ég feginn að hafa ekkert vit á þessu dóti.
Óli minn, 3.8.2011 kl. 22:37
Þessi könnun var grín og frekar greinarskert að taka strax mark á oft illa unnu copy/pasteinu beint frá reuters, sem er það eina sem íslenskir fjölmiðlar almennt hafa getu til, eða alla vega er siðferðilegur metnaður þeirra til að vinna vinnuna sína ekki hærri en svo. Þeir ættu því kannski að reyna að hækka eigin greindarvísitölu sem trúa copy/paste ruglinu frá Mogganum strax sem "staðreyndum", og þeir sem trúa copy/pasteinu frá visir.is og öðrum "Baugs"/ríkisstjórnarinnar miðlum ættu samstundis að færa sjálfræði sitt öðrum í hendur, til að skaða ekki sjálfan sig, þjóðina og mannkynið sökum pjúra dómgreindarskorts. Googlið smá og þá sjáið þið á fréttum virtari miðla að þetta var DJ'Ok og að þið, herrar mínir, eru leiðitamir og heilaþvegnir, trúgjarnir og ósjálfstæðir sauðir. You have been warned..!
Elítisti (IP-tala skráð) 4.8.2011 kl. 00:06
Og hér er sönnunargagnið svo, fyrir veslings litlu IQ 80 uppana sem halda að þeir séu betri en aðrir menn afþví þeir hafa efni á að kaupa makka eins og útrásarvíkingarnir. The REAL Elite has spoken!!! http://www.winrumors.com/internet-explorer-users-arent-dumb-study-was-a-hoax/
Elítisti (IP-tala skráð) 4.8.2011 kl. 00:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.