Styðjum Karl biskup.

Nú er mikilvægt að öll þjóðin, trúaðir sem trúlausir, styðji við bakið á biskupi svo hann megi gera hið eina rétta og segja af sér strax.

Aumingja maðurinn þarf greinlega á víðtækum stuðningi allra landsmanna að halda til þess arna fyrst hann getur þetta ekki af sjálfsdáðum.

Enn fremur þarf að hrinda sem fyrst í gang markvissri vinnu við að skilja að kirkju og ríkisspenann, afleggja sjálfkrafa skráningu ómálgra hvítvoðunga í trúfélög og tryggja þar með rétt þeirra sem vilja ekkert með slík félög hafa til að vera ekki skráð í þau að sér forspurðum. 

Hvað myndi fólk annars segja ef börn mæðra í Hells Angels væru sjálfkrafa skráð í félagið? 


mbl.is Biskup segi af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

kasti fyrsta steininum, kvað karlinn. Það féll á hann bjarg...dó!

Sá yðar sem syndlaus er... (IP-tala skráð) 10.6.2011 kl. 21:13

2 identicon

Það er vonandi að fólk geri sér grein fyrir því að níð og yfirhylming er normið í trúarsöfnuðum. Þetta er einmitt plága á heiminum öllum, og hefur verið líkast til um aldaraðir.
Þetta eru bara forneskjulegir klúbbar fáránleikans... sem nota bene íslensk þjóð borgar þúsundir milljóna í á hverju ári.

DoctorE (IP-tala skráð) 11.6.2011 kl. 13:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband