Ekki lengur ófrísk? Finnið 8 villur í þessari frétt.

Það er gott að þessi unga stúlka sé heil heilsu eftir að hafa verið flutt á spítala vegna hungurs og ekki lengur ófrísk.

Annars má ég til með að benda þeim sem fréttina lesa á að hún býður upp á skemmtilegan leik sem nefnist ...

Finnið 8 augljósar villur í þessari frétt:

Disney-stjarnan Selena Gomez er komin heim af spítalanum og orðin frísk á ný eftir að hafa þurft að fara í skyndi upp á sjúkrahús á fimmtudaginn. 

Í  byrun var ekki vitað hvað væri að hrjá leikkonuna og kærustu eftirsóttasta ungstyrni veraldar, Justin Bieber. En nú er komið í ljós að hún var bara svöng. Næringarskorturinn var svo mikill að hún þurfti að fara á spítala.

Læknar og starfsfólk spítalans bárust fljótt við og gáfu henni næringu og vítamín í kroppinn. Hini 18 ára gamla Selena hefur því sjaldan haft það betur. 


mbl.is Selena Gomez er orðin frísk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

spítala - ekki spítalanum

byrjun  - byrun

var að hrjá - ekki væri að hrjá (annars er svo mikið flakkað á milli tíða í þessari grein að ég fæ höfuðverk af að lesa hana)

ungstirni - ekki ungstyrni

brugðust fljótt við - ekki bárust fljótt við 

Síðasta málsgrein er svo út úr kú að ég veit ekki hvar ég á að byrja...  

Hvaða átta villur fannstu?

Hafþór (IP-tala skráð) 6.9.2011 kl. 22:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband